AFMÆLI!

hallelúja það styttist óðum í afmælisdagin minn og ég hlakka mjög mikið til fljótlega fer ég að búa til boðskort.Ég ætla að halda það laugardaginn 15 nóv. en ég á afmæli 18 nóv. og ég er að pæla í að spyrja mömmu hvort hún vilji baka köku í laginu eins og skip en lengra er ég ekki komin í undirbúning og skipuleggingum en ég ætla að gera eins og síðast fara inn á word forritið og búa til lista yfir allt í afmælinu svo sem gestina,mat og drykk, leiki o.f.l. en ekki meir að segja frá í bili bless bless


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ísbjörn

Já kallinn minn, það er ekki langt í afmælið þitt.

Það er ekki seinna vænna hjá þér að fara að gera undirbúningslistann þinn.

Við skulum athuga þetta með kökuna sem á að vera eins og skip. Kannski finnum við eitthvað út úr því.

Bestu kveðjur, mamma

Ísbjörn, 4.11.2008 kl. 09:27

2 identicon

Það er nú meira hvað tíminn líður hratt.  Mér finnst þú vera nýbúinn að halda upp á 9 ára afmælið þitt.  Mamma þín fer nú  létt með kökuna.

Kveðja, Olga frænka

Olga (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 00:10

3 identicon

Hvað á amma að baka Veddi minn?

Blessaður, amma

Amma (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 00:24

4 Smámynd: Gylfi Þór Gíslason

Já, ég veit það er alltaf eitthvað að brjótast um í þínum kolli. Ég er viss um að mamma býr til þessa köku fyrir þig.

 Kveðja pabbi

Gylfi Þór Gíslason, 7.11.2008 kl. 05:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband